Okkar líftryggingar

Til öryggis frá 1966

Árið 1966 var Alþjóða líftryggingarfélagið hf. (Alíf) stofnað. Eigendur þess voru íslenskir aðilar og breskt líftryggingarfélag, The International Life Insurance Company Ltd. En upphaf félagsins má rekja til opnunar útibús breska félagsins á Íslandi árið áður. Félagið er því elsta starfandi líftryggingarfélag á Íslandi. Í árslok 1996 keyptu SPARISJÓÐIRNIR og Kaupþing hf. allt hlutafé Alþjóða. Nokkrar breytingar urðu á eigendahópnum í árslok 2002 og í apríl 2005 keypti KB banki síðan allt hlutafé félagsins. Nafni félagsins var breytt eftir eigendaskiptin og hét þá Kaupþing líftryggingar hf. Á aðalfundi Kaupþings líftrygginga hf. sem haldinn var 20.mars 2009, var samþykkt að breyta nafni félagsins í OKKAR líftryggingar hf. Félagið er eftir sem áður í eigu Arion banka hf. og stendur sem fyrr traustum fjárhagslegum fótum. Félagið er óháð öðrum vátryggingarfélögum. Samstarfsaðilar í sölu og dreifingu eru KB ráðgjöf.

Eigendur

Framtíðarsýn félagsins er að vera fremsta líftryggingarfélag á Íslandi.
Því markmiði hyggst félagið ná með því að leggja áherslu á:

  • Fjárfestingu í þekkingu og tækni
  • Nýsköpun og frumkvæði
  • Framsækni og áræðni
  • Verðmætasköpun á nýjum viðskiptasviðum

Meginhlutverk fyrirtækisins er að veita nútíma vátryggingaþjónustu með arðsemi og hag eiganda að leiðarljósi og veita viðskiptamönnum sínum fjárhagslegt öryggi vegna sjúkdóms, örorku og andláts.

OKKAR líf hefur frá upphafi verið brautryðjandi í þróun persónutrygginga hér á landi. Sjúkdómatryggingar, reykingaafsláttur, barnatryggingar, örorkutryggingar og margs konar hóptryggingar eru meðal þess sem félagið hefur haft forystu um að kynna Íslendingum.

Starfsemi OKKAR lífs byggir á þjónustu við viðskiptavini og söluvaran er margs konar persónutryggingar sem rúmast innan laga um líftryggingastarfsemi. Nýverið hóf OKKAR líf að sinna þjónustu við fyrirtæki á markvissan hátt þar sem áhersla er lögð á ódýrar og öflugar hóptryggingar í líf- og sjúkdómatryggingum.

fara efst á síðu