Rafrænar umsóknir – nýjung á Íslandi
22.11 2011OKKAR líftryggingar bjóða nú fyrst íslenskra líftryggingafélaga viðskiptavinum sínum að sækja um tryggingar rafrænt. Í fyrstu er eingöngu er hægt að sækja rafrænt um:
OKKAR Framtíð – Trygging fyrir fjárhagslega framtíð og sjálfstæði barna og ungmenna hljóti þau varanlega örorku í kjölfar slysa eða veikinda.
OKKAR Öryggi – Trygging sem greiðir fullar bætur við andlát vegna slyss eða ef afleiðingar þess hafa í för með sér 70% varanlega læknisfræðilega örorku.
Þessi nýjung hefur farið afar vel af stað og gerir umsóknarferlið mun auðveldara. Einnig verður úrvinnsla umsókna mun þægilegri í alla staði.
Víða erlendis hafa viðskiptavinir líftryggingafélaga í æ ríkara mæli valið að sækja um sínar tryggingar rafrænt og því er löngu tímabært að bjóða uppá þennan möguleika á Íslandi.
til bakafara efst á síðu
