Tryggingar
Aðstæður breytast
Aðstæður þínar breytast í lífinu - það sama á við um tryggingarnar þínar
Ef þú ættir gæs sem verpir gulleggjum, hvort væri skynsamlegra að tryggja eggin eða gæsina? Gæsina að sjálfsögðu, þar sem hún verpir gulleggjunum og er því uppspretta teknanna. Íslendingum er tamt að tryggja gulleggin, þ.e. íbúðina, innbúið, bílinn en allt of margir vanrækja að tryggja uppsprettu teknanna, þá sjálfa.
Líf og ábyrgð einstaklinga breytist og það er mikilvægt að tryggingavernd þín taki mið af því. Hafir þú gengið í hjónaband, keypt stærra húsnæði eða orðið foreldri, þarf að huga að tryggingaverndinni. Sýndu ábyrgð og kannaðu hvort hlutirnir eru í lagi hjá þér.
Hjá OKKAR lífi færðu:
- Hagstæð iðgjöld hjá íslensku félagi sem býður mest úrval persónutrygginga.
- Val um ýmsar gerðir vátrygginga eftir þínum þörfum.
Sendu okkur póst, fáðu tilboð og vertu þinn eigin tryggingaráðgjafi.
Þú getur komið í heimsókn til okkar eða hringt í síma 540 1400 og óskað eftir ráðgjöf.
Kostir persónutrygginga
Er ekki líftrygging bara líftrygging? Orðið líftrygging er gjarnan notað yfir nokkrar tegundir trygginga. OKKAR líf býður margs konar vátryggingavernd sem þú hefur e.t.v. ekki velt fyrir þér eða þú veist ekki um. Nefna má dánaráhættutryggingar, sjúkdómatryggingar, örorkutryggingar auk OKKAR barnatryggingar.
Þessar tryggingar hafa allar það að markmiði að greiða þér eða eftirlifendum eingreiðslu dynji ógæfan yfir. Velja má greiðslumátann, vátryggingafjárhæðir og tímalengd samnings, allt eftir því hvað hentar þér. Bætur eru skattfrjáls eingreiðsla til rétthafa bóta, sem greiddar eru við vátryggingaatburð. Hvaða þarfir sem þú kannt að hafa, getum við fundið lausn fyrir þig.
Hugarró
Þegar þú hefur keypt dánaráhættutryggingu og sjúkdómatryggingu getur þú og fjölskyldan treyst því að fyrir hendi er vátryggingavernd.
Að tryggja fjárhagslega afkomu
Hefurðu velt fyrir þér hvaða áhrif alvarlegur sjúkdómur getur haft á daglegt líf þitt? Til viðbótar við hugsanlegan tekjumissi getur þú þurft að leggja í umfangsmiklar breytingar á heimili þínu, jafnvel að flytja eða kaupa dýr tæki til að auðvelda lífið. Það er mikið áfall að greinast með alvarlegan sjúkdóm þó að ekki bætist við fjárhagsáhyggjur í kjölfarið. Sjúkdómatryggingar eru réttu tryggingarnar í þeim tilvikum.
Greiðslumáti
Sjaldnast velur fólk að borga iðgjöld vátrygginga í eingreiðslu við endurnýjun. Það er ólíkt þægilegra að semja um greiðslu iðgjalda yfir lengra tímabil. Þannig verða greiðslur léttari og minni hætta er á að það gleymist að greiða iðgjöldin. OKKAR líf býður viðskiptavinum sínum að greiða með boðgreiðslum, beingreiðslum eða að fá rafræna kröfu í netbanka.
Breyting á vátryggingavernd
Breytist aðstæður er hægt að lækka vátryggingafjárhæð eða sækja um viðbótarvernd. Framtíðin er óræð og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Stöðuhækkun, stærra húsnæði og nýir fjölskyldumeðlimir, allt kallar þetta á endurskoðun vátryggingaverndar.
Sjúkdómatrygging barna
OKKAR líf býður víðtækustu barnavernd á íslenska markaðnum nú. Veikindi barna geta ekki síður haft í för með sér mikið tekjutap foreldra. Börn á aldrinum 3 mánaða til 18 ára eru tryggð án aukaiðgjalds í sjúkdómatryggingu foreldra sinna vegna sömu sjúkdóma. Bætur vegna barna skerða ekki sjúkdómatryggingu foreldra.
OKKAR Framtíð
OKKAR Framtíð er trygging fyrir fjárhagslega framtíð og sjálfstæði barna og ungmenna hljóti þau varanlega örorku í kjölfar slysa eða veikinda. Trygginguna er unnt að taka allt frá 3ja mánaða aldri barnsins og gildir hún til loka 25 ára aldurs. Tryggingin er ómetanlegt haldreipi ef vágestir knýja dyra.
