Starfsörorkutrygging
Slys og sjúkdómar gera ekki boð á undan sér
Starfsörorkutrygging veitir fjárhagslega vernd í tengslum við alvarleg slys og sjúkdóma sem valda tímabundinni eða varanlegri örorku. Flest byggjum við afkomu okkar á launaðri atvinnu og ef til alvarlegs slyss eða sjúkdóms kemur, eiga flestir rétt á greiðslum frá vinnuveitanda í allt að sex mánuði.
Þær greiðslur sem launafólk á rétt á frá Tryggingastofnun og almenna lífeyriskerfinu duga sjaldnast til að halda því lífsmynstri sem við höfum tamið okkur. Fæstir ráða við tekjumissi til lengri tíma og því er nauðsynlegt að tryggja sig gegn ófyrirsjáanlegu tekjutapi sem óhjákvæmilega fylgir slysum og alvarlegum sjúkdómum.
Starfsörorkutryggingin greiðir
Bætur vegna tímabundinnar og varanlegrar skerðingar á starfsorku af völdum slyss eða sjúkdóms. Bætur greiðast til einstaklings þegar tjónsatburður leiðir til þess að geta hans til að afla tekna á vinnumarkaði skerðist verulega, 50% eða meira.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því, að við mat á skertri starfsörorku er miðað við getu vátryggðs til að gegna starfi sem telst vera eðlilegt fyrir einstakling með óskerta starfsorku, sem er á svipuðum aldri, með sambærilega starfsreynslu, menntun og verkkunnáttu.
Örorkubætur vegna umferðarslysa eru undanskildar úr tryggingunni, þar sem bætur úr ökutækjatryggingum greiða fullar bætur vegna afleiðinga þeirra.
Vátryggingarfjárhæð
Vátryggingarfjárhæð er valin á umsókn og er notuð til ákvörðunar mánaðarlegra bóta og örorkubóta vegna varanlegrar skerðingar starfsorku.
Tímabundinn starfsorkumissir
Verði vátryggður fyrir tímabundnum missi starfsorku eru greiddar umsamdar bætur mánaðarlega. Fyrstu sex mánuðir eru án bóta, en síðan eru greiddar bætur í allt að 30 mánuði, eða þar til ætla má að stöðugleika í heilsufari hafi verið náð, eða varanleg örorka hefur verið staðfest.
Varanlegur starfsorkumissir
Valdi slys eða sjúkdómur vátryggðum varanlegri skerðingu starfsorku og fyrir liggur mat þess efnis greiðir félagið örorkubætur í formi skattfrjálsrar eingreiðslu sem tekur mið af tímalengd samningsins og þeirri vátryggingarfjárhæð sem valin hefur verið.
Í Starfsörorkutryggingu OKKAR lífs hefur tekist að lækka iðgjöld verulega. Bótasvið tryggingarinnar er sniðið að þeim tjónsatburðum sem mest er þörf fyrir, en undanskildir eru tjónsatburðir sem bættir eru úr ökutækjatryggingum.
Uppbygging Starfsörorkutryggingar OKKAR lífs er þannig að rétthafi bóta sleppur við að greiða tekjuskatt af þeim bótafjárhæðum sem hann hefur valið sér, þegar varanlegt örorkustig liggur fyrir.
