Sjúkdómatrygging
Alvarleg veikindi gera ekki boð á undan sér
Alvarleg veikindi gera sjaldan boð á undan sér. Sjúkdómatrygging verndar fjölskylduna gegn tekjutapi sem óhjákvæmilega fylgir alvarlegum veikindum.
Hagnýtur upplýsingar um sjúkdómatryggingu OKKAR lífs
Hér að neðan eru frekari útlistanir á sjúkdómatryggingum OKKAR lífs. Fáðu þarfagreiningu og verðtilboð.
Hvern verndar sjúkdómatryggingin?
Með sjúkdómatryggingu tryggir þú fjárhagslegt öryggi þitt og fjölskyldunnar ef til alvarlegra veikinda kemur. Það er nógu erfitt að fást við erfið veikindi, þó fjárhagsáhyggjur bætist ekki við líka.
Sjúkdómatrygging barna
Ef barn vátryggða, 3 mánaða til 18 ára, verður á vátryggingatímanum fyrir bótaskyldum atburði skv. skilmálum félagsins, greiðir félagið 50% vátryggingarfjárhæðar sjúkdómatryggingarinnar, þó að hámarki 7 m.kr. Bætur úr sjúkdómatryggingu barna greiðast aðeins einu sinni fyrir hvert barn.
Rétthafi bóta
Sjúkdómatrygging tryggir vátryggða eingreiðslu greinist hann með alvarlegan sjúkdóm sem skilgreindur er í skilmálum félagsins. Forsendur greiðslu að vátryggði lifi í 30 daga frá tjónsatburði.
Vátryggingabeiðni
Til að fá sjúkdómatryggingu hjá OKKAR lífi er nauðsynlegt að fylla út vátryggingabeiðni hjá félaginu. Mikilvægt er að sá sem vátryggja á fylli sjálfur út beiðnina. Rangar upplýsingar eða ef ekki er greint frá hlutum sem spurt er um á vátryggingabeiðninni getur leitt til þess að bótakröfu verði hafnað.
Greiðsla bóta
Við tjónsatburð eru bætur greiddar í einu lagi eftir að fullnægjandi gögn hafa borist félaginu. Bætur eru greiddar út án frádráttar hugsanlegra skatta og gjalda. Skv. úrskurði yfirskattanefndar í málinu nr. 93/2009, teljast bætur úr sjúkdómastyggingum til skattskylda tekna þess sem bæturnar hlýtur. Íslenska ríkinu hefur nú verið stefnt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til ógildingar á úrskurðinum, enda er það skoðun íslenskra tryggingafélaga og Samtaka Fjármálafyrirtækja, að umrædd skattheimta sé andstæð lögum. Við bendum viðskiptamönnum Okkar á framangreinda skoðun skattyfirvalda. Frekari upplýsingar um þetta má finna hér.
Vátryggingafjárhæð
Vátryggingafjárhæð kemur fram á vátryggingaskírteini og endurnýjunarkvittun og breytist í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Iðgjaldafrelsi
Missi sá sem tryggður er a.m.k. helming starfsorku sinnar vegna slyss eða sjúkdóms sem ekki eru bótaskyld greiðir félagið iðgjöld af tryggingunni meðan starfsorkumissirinn varir.
Iðgjald
Iðgjald tekur mið af vátryggingafjárhæð ásamt aldri þínum. Iðgjald og vátryggingafjárhæð breytist í samræmi við hækkanir á vísitölu neysluverðs. Vátryggingarfjárhæð helst óbreytt en iðgjald hækkar á hverju ári í samræmi við aldur þar til 55 ára aldri er náð. Eftir þann tíma er iðgjald óbreytt, en vátryggingarfjárhæðin lækkar.
BÓTASVIÐ SJÚKDÓMATRYGGINGAR
Hér að neðan er nánari lýsing á bótaskyldum atburðum. ATHUGIÐ AÐ EKKI ER UM TÆMANDI LÝSINGU AÐ RÆÐA. Hana er að finna í skilmálum sjúkdómatrygginga.
- Krabbamein
- Góðkynja heilaæxli
- Heilaáfall / slag
- Hjartaáfall / kransæðarstífla
- Kransæðaruppskurður
- Blinda
- Alzheimer
- Parkinsons
- Alvarleg brunasár
- Útlimamissir
- Hjartaskurðaðgerð
- MS
- MND
- Ósæðaraðgerð
- Líffæraflutningur
- Nýrnabilun
- Heyrnarleysi
- Eyðnismit við blóðgjöf, líkamsárás eða framkvæmd tiltekinna starfa
