OKKAR Öryggi

 

Ekkert okkar þekkir morgundaginn. Enginn á hann vísan. Á augabragði getum við staðið frammi fyrir nýjum veruleika, gjörbreyttum fjárhagslegum forsendum og breyttu lífsmynstri í lengri eða skemmri tíma.

Við getum hins vegar verið viðbúin slíkum áföllum og oft komið í veg fyrir að þau reynist okkur rothögg. OKKAR öryggi er hornsteinn í slíkum undirbúningi og getur skipt sköpum ef við þurfum að brúa bil vegna tekjuskerðingar, breyta um húsnæði, skipta um bíl eða mæta öðrum óvæntum útgjöldum. OKKAR öryggi getur líka verið kærkomið haldreipi ef við viljum í ljósi nýrra aðstæðna söðla um, leggjast í ferðalög, hefja langt og kostnaðarfrekt nám eða fjárfesta í leiðum til að láta nýja drauma rætast.

OKKAR líftryggingar bjóða einfalda tryggingu. OKKAR öryggi, sem greiðir fullar bætur við andlát vegna slyss eða ef afleiðingar þess hafa í för með sér 70% varanlega læknisfræðilega örorku.

Aðalatriði OKKAR öryggis:

  • Samsett trygging með dánar- og örorkubótum vegna slyss.
  • Tryggingartaki velur sjálfur vátryggingarfjárhæðina.
  • Ekki er þörf á sérstakri heilsufarsyfirlýsingu.
  • Við 70% varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss greiðast fullar bætur í einu lagi til vátryggðs.
  • Við andlát vegna slyss greiðast bætur til eftirlifenda.
  • Vátryggingin fellur niður við útgreiðslu örorkubóta.

Látum þéttriðið öryggisnet vandaðra persónutrygginga minnka áhyggjur okkar af hinu óþekkta og auðvelda okkur sóknarfærin ef þáttaskil verða á lífsleiðinni.

Skilmálar

fara efst á síðu