Líftrygging
Fyrirhyggja gerir lífið áhyggjuminna
Líf og ábyrgð einstaklinga breytist stöðugt og það er mikilvægt að tryggingavernd taki mið af aðstæðum hverju sinni. Mikil ábyrgð hvílir á þeim sem tekist hafa á hendur fjárhagslegar skuldbindingar. Skuldabyrði heimila hefur aukist mjög undanfarin ár og fjárhagsskuldbindingar eru til lengri tíma en áður, einkum vegna húsnæðiskaupa. Skuldir fjölskyldunnar hverfa ekki þótt þú fallir frá. Þess vegna ættir þú að sjá til þess að fjárhagsleg framtíð þeirra sem eru á þínu framfæri sé tryggð þótt þín njóti ekki lengur við.
Hvern verndar líftrygging?
Líftrygging er fjárhagsleg vernd fyrir aðstandendur – maka og börn. Ef þú ert í ábyrgðum fyrir aðra eða aðrir í ábyrgðum fyrir þig, er ástæða til að gera ráðstafanir. Líftryggingarbætur geta hjálpað eftirlifandi maka og börnum að endurskipuleggja líf sitt án þess að þau þurfi að hafa áhyggjur af framfærslu og afborgunum lána.
Hagnýtar upplýsingar um líftryggingar OKKAR lífs
Hér að neðan eru frekari útlistanir á líftryggingum OKKAR lífs. Fáðu þarfagreiningu og verðtilboð.
Vátryggingabeiðni
Til að fá líftryggingu hjá OKKAR lífi er nauðsynlegt að fylla út vátryggingabeiðni hjá félaginu. Mikilvægt er að sá sem vátryggja á fylli sjálfur út beiðnina. Rangar upplýsingar eða ef ekki er greint frá hlutum sem spurt er um á vátryggingabeiðninni getur leitt til þess að bótakröfu verði hafnað.
Líftrygging barna
OKKAR líf hefur nú fyrst íslenskra félaga bætt dánarbótum barna inn í bótasvið líftryggingar einstaklinga. Bætur þessar eru án endurgjalds og nemur vátryggingarfjárhæð áætluðum útfararkostnaði. Bætur vegna barna skerða ekki líftryggingu foreldra.
Greiðsla bóta
Við andlát eru bætur greiddar í einu lagi innan 14 daga eftir að fullnægjandi gögn hafa borist félaginu. Bæturnar eru undanþegnar tekjuskatti þar sem um eingreiðslu er að ræða.
Vátryggingafjárhæð
Vátryggingafjárhæð kemur fram á vátryggingaskírteini og endurnýjunarkvittun og breytist í samræmi við vísitölu neysluverðs.
Aldurstengt iðgjald
Iðgjald tekur mið af vátryggingafjárhæð ásamt aldri þínum. Iðgjald og vátryggingafjárhæð breytist í samræmi við hækkanir á vísitölu neysluverðs. Vátryggingarfjárhæð helst óbreytt en iðgjald hækkar á hverju ári í samræmi við aldur þar til 55 ára aldri er náð. Eftir þann tíma er iðgjald óbreytt, en vátryggingarfjárhæðin lækkar.
Fast iðgjald/lækkandi vátryggingafjárhæð
Þessi tegund dánaráhættutrygginga byggir á því að valin er tiltekin vátryggingafjárhæð, iðgjaldið er fastsett og vátryggingafjárhæð lækkar árlega í samræmi við áhættu þar til 60 ára aldri er náð. Raunar má segja að iðgjaldið dugi aðeins til að kaupa lægri vátryggingafjárhæð frá ári til árs, þar sem áhættan vex með aldri. Þessi tegund dánaráhættutrygginga er einungis seld í tengslum við séreignalífeyrissparnað.
