Lánavernd
Eflir fjárhagslegt öryggi
Á undanförnum misserum hefur aukið framboð lánsfjármagns á hagstæðari vöxtum en áður hafa þekkst hér á landi og gerði það fólki kleift að fjármagna íbúðarkaup til lengri tíma með hærra veðhlutfalli. Þetta þýðir í raun að skuldsetning heimilanna hefur vaxið verulega og því er nauðsynlegt að hyggja að fjárhagslegu öryggi fjölskyldunnar komi til andláts eða alvarlegs slyss.
Við bjóðum Lánavernd í samstarfi við Arion banka. Lánavernd er líf- og sjúkdómatrygging. Við tjónsatburð greiðist vátryggingarfjárhæðin til bankans sem annast greiðslur á vöxtum og afborgunum fasteignaláns viðkomandi í tiltekinn árafjölda, í allt að 7 ár, allt eftir vali lántakanda. Hugmyndin með þessu er að við erfið veikindi eða andlát þurfi fjölskyldan ekki að hafa áhyggjur af greiðslu fasteignalána.
Við mælum með að Lánavernd verði tiltekin % af höfuðstóli lánsins, þannig að ef t.d. önnur fyrirvinnan fellur frá, þá léttist greiðslubyrði þess sem eftir stendur. Vátryggingarfjárhæðin er endurskoðuð árlega með tilliti til höfuðstóls lánsins.
Lánavernd í hnotskurn:
- Eflir fjárhagslegt öryggi við óvænt áföll.
- Samsett líf/sjúkdómatrygging.
- Býðst viðskiptavinum sem eru með eða taka íbúðalán.
- Tryggir greiðslur á afborgunum og vöxtum íbúðaláns í allt að 7 ár.
- Sjúkdómatrygging barna.
