Hóptryggingar

Velferð starfsmanna

Starfsmenn eru lífæð hvers fyrirtækis. Traust þeirra og velvild í garð fyrirtækisins skiptir meginmáli. Með því að sýna umhyggju fyrir velferð starfsmanna sinna ná fyrirtæki enn betri árangri.

Hóptryggingar starfsmanna

OKKAR líf býður starfsmannatryggingar fyrir fyrirtæki þar sem víðtæk vernd og hagstæð iðgjöld fara saman. Starfsmenn eru tryggðir sem einn hópur. Við töku tryggingarinnar nægir yfirlýsing frá vinnuveitanda um að viðkomandi hafi verið vinnufær í tiltekinn tíma.

Hóplíftrygging með örorkutryggingu

Hugmyndin með þessari tryggingu er að allir fastráðnir starfsmenn sem hafa verið að fullu vinnufærir sl. 3 mánuði fyrir töku tryggingarinnar njóti líftryggingarverndar og slysaörorkutryggingar. Hún er fjárhagsleg vernd fyrir vátryggðan, aðstandendur hans, maka og börn. Vátryggingarfjárhæð er að hámarki 5.000.000.- kr.

Hópsjúkdómatrygging

Þessi trygging bætir flesta alvarlega sjúkdóma og stórar aðgerðir. Ef bætur eru greiddar úr tryggingunni vegna bótaskylds sjúkdóms starfsmanns er tryggingin samt sem áður áfram í gildi. Vernd starfsmannsins gagnvart öðrum bótaskyldum sjúkdómum skerðist ekki, svo lengi sem hann er tryggður í hóptryggingunni og er vinnufær, ólíkt því sem tíðkast með aðrar sjúkdómatryggingar.
Vátryggingarfjárhæð er að hámarki 3.000.000.- kr.

Kostir hóptrygginga

  • Víðtækari vernd en almennt gerist.
  • Mjög hagstæð iðgjöld.
  • Bætur greiddar í eingreiðslu, enginn tekjuskattur.
  • Engin umsókn - einföld yfirlýsing atvinnurekanda.
  • Allir innan hópsins eru tryggðir.

Skilmálar

fara efst á síðu