Spurt og svarað
Hvað með líftrygginguna?
Ef tryggingartaki fellur frá á samningstímanum er sparnaðurinn greiddur út sem líftrygging og bætist þá 1% við inneignina sem safnast hefur. Líftryggingin greiðist út skattfrjáls; hvorki er greiddur erfðafjárskattur né fjármagnstekjuskattur af inneigninni.
Hvernig virkar þessi söfnun?
Tryggingartaki gerir samning við félagið um reglubundinn sparnað til ákveðins tíma og á sama tíma ákveður hann hvaða söfnunarsjóð hann vill að sparnaður sinn fari í. Fjárfestingarleiðirnar bera ákveðið gengi sem sveiflast eftir markaðsvirði undirliggjandi eigna. Þegar hin mánaðarlega greiðsla berst félaginu eru keyptar einingar í viðkomandi sjóði á því gengi sem hann hefur á þeim tíma.
