Fjárfestingarleiðir
Fjölbreytt úrval fjárfestingarleiða
Í OKKAR fjárfestingarleiðum er boðið upp á á fjölbreytt úrval fjárfestingarleiða með mismikilli áhættu til að mæta ólíkum þörfum einstaklinga. Þér er frjálst að velja eina fjárfestingarleið eða blanda saman allt að fjórum leiðum í þeim hlutföllum sem þér hentar. Við val á fjárfestingarleið er m.a. ráðlegt að huga að því til hversu langs tíma þú hyggst spara og hvert viðhorf þitt er til áhættu.
Ekki er hægt að segja til um hvaða fjárfestingarleið muni skila hæstu ávöxtun þegar horft er til framtíðar en söguleg gögn frá upphafi verðbréfamarkaða sýna að áhættumeiri fjárfestingarleiðir skila að jafnaði hærri langtímaávöxtun en áhættuminni leiðir. Ráðlegt er að draga úr áhættu í fjárfestingum eftir því sem þú eldist eða eftir því sem styttist í áætlaða úttekt á sparnaði.
| Fjárfesting | OKKAR erlend hlutabréf | OKKAR innlend hlutabréf | OKKAR blönduð hlutabréf | OKKAR blönduð verðbréf 1 | OKKAR blönduð verðbréf 2 | OKKAR blönduð verðbréf 3 | OKKAR innlán | OKKAR innlend skuldabréf |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Innlend hlutabréf | 100% | 20% | 10% | 5% | ||||
| Erlend hlutabréf | 100% | 80% | 55% | 35% | 15% | |||
| Innlend skuldabréf | 35% | 60% | 85% | 100% | ||||
| Innlán | 100% |
OKKAR erlend hlutabréf
Í OKKAR erlendum hlutabréfum er markmið að fjárfesta 100% í erlendum hlutabréfum. Sveiflur í ávöxtun geta verið talsvert miklar í þessari leið. Búast má við að vænt ávöxtun sé því að öllu óbreyttu heldur meiri en í áhættuminni leiðum. Vegna núverandi reglna um gjaldeyrishöft er nú óheimilt að kaupa erlendar eignir fyrir innborganir í leiðina.
OKKAR innlend hlutabréf
Í OKKAR innlendum hlutabréfum er markmið að fjárfesta 100% í innlendum hlutabréfum. Sveiflur í ávöxtun geta verið talsvert miklar í þessari leið. Búast má við að vænt ávöxtun sé því heldur meiri en í áhættuminni leiðum.
OKKAR blönduð hlutabréf
Í OKKAR blönduðum hlutabréfum er markmið að fjárfesta 100% í hlutabréfum, þar af 20% innlendum. Sveiflur í ávöxtun geta verið talsvert miklar í þessari leið. Búast má við að vænt ávöxtun sé því heldur meiri en í áhættuminni leiðum.
OKKAR blönduð verðbréf 1
Í OKKAR blönduðum verðbréfum 1 er fjárfest 65% í hlutabréfum, þar af 10% innlendum. Í innlendum skuldabréfum er hlutfallið um 35%. Sveiflur í ávöxtun geta verið talsvert miklar í þessari leið en eru þó að öllu óbreyttu minni en í hreinu hlutabréfaleiðunum. Búast má við að vænt ávöxtun sé því heldur minni en í áhættumeiri leiðunum.
OKKAR blönduð verðbréf 2
Í OKKAR blönduðum verðbréfum 2 er fjárfest 40% í hlutabréfum, þar af 5% innlendum. Í innlendum skuldabréfum er hlutfallið um 60%. Sveiflur í ávöxtun geta verið miklar í þessari leið en eru þó að öllu óbreyttu minni en í hreinu hlutabréfaleiðunum og leið 1. Búast má við að vænt ávöxtun sé því heldur minni en í áhættumeiri leiðunum.
OKKAR blönduð verðbréf 3
Í OKKAR blönduðum verðbréfum 3 er fjárfest 15% í hlutabréfum. Í innlendum skuldabréfum er hlutfallið um 85%. Sveiflur í ávöxtun geta verið nokkrar í þessari leið en eru þó a.ö.óbr. minni en í hreinu hlutabréfaleiðunum og leið 1-2. Búast má við að vænt ávöxtun sé því heldur minni en í áhættumeiri leiðunum.
OKKAR innlán
Í OKKAR innlánum eru innborganir lagðar inn á innlánsreikning sem ber verðtryggða vexti skv. vaxtatöflu Arion banka á hverjum tíma. Þessi leið er sérstaklega ætluð þeim sem vilja lágmarka sveiflur á verðmæti inneignar sinnar svo og nýta sér kosti verðtryggingar. Samkvæmt yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda eru innlán í íslenskum bönkum og fjármálastofnunum tryggðar að fullu af íslenska ríkinu en hafa verður í huga að þetta er ekki lögbundið.
Vinsamlegast athugið að í gildi eru reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, en þær segja m.a. til um binditíma verðtryggðra innlána sem í dag er 3 ár. Ekki er tekið við nýjum áskriftum í þessa leið.
OKKAR innlend skuldabréf
Í OKKAR innlend skuldabréf er fjárfest í skuldabréfum gefnum út af ríkinu, innlendum fyrirtækjum og innlánum. Markmið er að ná góðri ávöxtun þar sem áhersla er lögð á áhættudreifingu og trausta skuldara. Þessi leið hentar þeim sem vilja taka þá áhættu sem felst í fjárfestingu á innlendum skuldabréfamarkaði.
fara efst á síðu