Nánar um OKKAR framtíð
OKKAR Framtíð er trygging fyrir fjárhagslega framtíð og sjálfstæði barna og ungmenna hljóti þau varanlega örorku í kjölfar slysa eða veikinda. Trygginguna er unnt að taka allt frá 3ja mánaða aldri barnsins og gildir hún til loka 25 ára aldurs. Við hana má flétta OKKAR sparnaði í Framtíðarbók sem kemur til útborgunar við 18 ára aldur. Tryggingin er ómetanlegt haldreipi ef vágestir knýja dyra. Sparnaðurinn er óháður áföllum og útborgun hans einfaldlega viðbótarveganesti út í lífið.
- OKKAR Framtíð greiðir skattfrjálsar örorkubætur í formi eingreiðslu um leið og varanlegt örorkumat liggur fyrir. Eingreiðslan ber vexti til 18 ára aldurs og henni má skipta upp í mánaðarlegar greiðslur til 60 ára aldurs.
- Tryggingin greiðir einnig dagpeninga vegna sjúkrahússdvalar, umönnunarbætur til foreldra og dánarbætur.
- Tryggingin tekur ekki til þeirra tilfella þar sem sjúkdómar eða slys hafa átt sér stað fyrir gildistöku hennar né heldur til þeirra tilfella þar sem um geðræna sjúkdóma, þroskafrávik eða meðfædda fötlun er að ræða.
- OKKAR sparnaður er verðtryggður með hæstu vöxtum almennra innlánsreikninga.
Dýrmæt fyrirhyggja
Börn eða ungmenni sem dæmast til örorku án þess að hafa í farteskinu langa reynslu og launahefð á vinnumarkaði njóta einungis lágmarksbóta frá almannatryggingakerfinu það sem eftir er ævinnar. Slíkar bætur hrökkva því miður skammt. Að sama skapi er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að réttur til örorkulífeyris frá lífeyrissjóðum tekur almennt ekki gildi fyrr en greitt hefur verið í lífeyrissjóð í 24 mánuði. Börn og ungmenni hafa í fáum tilfellum öðlast slíkan rétt sakir aldurs og takmarkaðs tíma á vinnumarkaði. OKKAR Framtíð getur brúað það bil.
Fjögur bótasvið OKKAR Framtíðar
- Örorkubætur:
Mikilvægasti bótaþátturinn er réttur til skattfrjálsra örorkubóta ef sjúkdómur eða slys hefur haft í för með sér varanlega skerðingu á líkamlegri getu vátryggðs.
Þrír valkostir eru í boði:
Mánaðarlegt iðgjald kr.
Vátryggingarfjárhæð kr.
Hámarksbæur kr.
500.- 4.000.000.- 12.000.000.- 1000.- 8.000.000.- 24.000.000.- 1.500.- 12.000.000.- 36.000.000.-
- Dagpeningar vegna sjúkrahúsdvalar:
Tryggingunni er ætlað að aðstoða fjölskyldur þegar barn þarf að dvelja á sjúkrahúsi til lengri eða skemmri tíma. Tryggingin greiðir að hámarki 4.800 krónur á dag í allt að eitt ár eða 1.752.000 krónur yfir árið.
- Umönnunarbætur til foreldra:
Tryggingin greiðir bætur til foreldra eða forsjáraðila vegna sjúkdóms eða slyss barnsins. Umönnunarbætur geta numið 10% af vátryggingarfjárhæð í allt að tíu ár og geta því numið að hámarki tólf milljónum króna alls sem jafngildir 100 þúsund krónum á mánuði.
- Dánarbætur:
Tryggingin greiðir bætur ef hinn tryggði andast á gildistíma tryggingarinnar. Vátryggingarfjárhæð er 600 þúsund krónur.
Trygginguna má kaupa fyrir einstaklinga frá 3ja mánaða til 16 ára aldurs og gildir hún til 26 ára aldurs.

