Umsóknin

Þarf ég að geta þess að ég hafi reykt?

Á umsóknareyðublaði er spurt hvort þú hafir reykt sl. 12 mánuði. Ef svarið er já, spyrjum við um hve mikið þú reykir á viku.

Þarf ég að láta félagið vita ef heilsu minni hrakar eftir umsókn

Já. Ef breyting verður á heilsufari á tímabilinu, frá því að umsókn var fyllt út þar til vátrygging tekur gildi, er nauðsynlegt að láta félagið vita. Sé það ekki gert, geta afleiðingarnar orðið þær að tryggingin verði felld og tjóni sem upp kann að koma verði hafnað. Breyting á heilsufari eftir að trygging tekur gildi hefur að sjálfsögðu ekki áhrif að gildi tryggingarinnar.

Get ég fengið afrit af læknaskýrslunni?

Telji félagið af einhverjum ástæðum þörf læknisskoðunar, getur þú að sjálfsögðu fengið afrit af læknisskýrslunni. Allar persónuupplýsingar sem OKKAR líf fær um viðskiptavini sína eru meðhöndlaðar í fyllsta trúnaði af starfsmönnum félagsins sem eru bundnir þagnarskyldu um efnisinnihald slíkra skýrslna.

Hafi umsækjandi fengið afrit skýrslu og sé hann ekki sáttur við efnisinnihaldið, getur viðkomandi gert athugasemdir við lækninn eða félagið, og verða þær meðhöndlaðar á faglegum grunni.

Eru einhverjar spurningar um heilsufar?

Já, það eru nokkrar einfaldar spurningar um heilsufar. Mikilvægt er að svör séu rétt þar sem það getur haft áhrif á áhættumat og að beiðni sé samþykkt. Vinsamlegast fyllið út eins nákvæmlega og kostur er.

Þarf ég að fara í læknisskoðun?

Í upphafi þarf aðeins að svara spurningunum á vátryggingabeiðninni. Sé frekari upplýsinga þörf mun trúnaðarlæknir félagsins hafa samband við þig, finna hentugan tíma til að framkvæma einfalda læknisskoðun sem tekur 30-40 mínútur. Sé vátryggingafjárhæð mjög há, eða gefi einföld læknisskoðun tilefni til frekari skoðunar kann að vera þörf á ítarlegri skoðun. Sé heilsa umsækjanda í góðu lagi er í fæstum tilvikum þörf læknisskoðunar. Félagið greiðir allan kostnað vegna læknisskoðunar.

Hve langan tíma tekur að fylla út umsókn hjá félaginu?

Reikna má með að útfylling vátryggingabeiðni taki 10-15 mínútur.