Um tryggingarnar
Get ég lækkað vátryggingafjárhæðina?
Hægt er að lækka vátryggingafjárhæðina hvenær sem er. Það þarf að gerast skriflega. Lækkunin leiðir jafnframt til lægri iðgjalda.
Get ég hækkað vátryggingarfjárhæðina?
Rétt er að endurskoða vátryggingafjárhæðir öðru hverju, sérstaklega þegar breytingar verða á lífsmynstri, t.d. breytingar á húsnæði, gifting, barneignir o.s.frv.
Til að fá aukna tryggingavernd þarf að fylla út nýja umsókn.
Eru einhver aldurstakmörk við töku trygginganna?
Lágmarksaldur við töku tryggingar er 18 ár. Mismunandi er hve lengi hægt er að hafa tryggingarnar í gildi:
- Líftryggingar til 70 ára aldurs.
- Sjúkdómatryggingar til 65 ára aldurs.
- Fjölskylduvernd til 60 ára aldurs.
- Lánavernd til 62 ára aldurs.
- Örorkutryggingar til 60 ára aldurs.
Get ég skipt um tryggingafélag?
OKKAR líf mælir ekki með að skipt sé um félag ef heilsan hefur versnað og alls ekki fyrr en öruggt er að sambærileg vernd fáist annars staðar.
