Sjúkdómatryggingar

Hvenær eru bætur ekki greiddar úr sjúkdómatryggingu?

Það eru nokkrar ástæður sem geta valdið því að bótum úr tryggingunni er hafnað eða bætur verði skertar við greiningu sjúkdóms.

Ef í ljós kemur að mikilvægum upplýsingum um heilsufar hefur verið haldið leyndum fyrir félaginu, getur OKKAR líf hafnað bótum eða skert þær.

Séu iðgjöld ekki greidd af vátryggingunni getur verndin fallið niður skv. nánari reglum félagsins.

Ef vátryggði andast innan 30 daga frá skilgreindum tjónsatburði.

Ef tjónsatburður er sérstaklega undanskilinn við útgáfu tryggingarinnar.

Geta börnin mín fengið sjúkdómatryggingu?

Börn vátryggðs eru sjálfkrafa tryggð í sjúkdómatryggingunni. Ef barn vátryggða, 3 mánaða til 18 ára verður á vátryggingatímanum fyrir bótaskyldum atburði skv. skilmálum félagsins, greiðir félagið 50% vátryggingarfjárhæðar sjúkdómatryggingarinnar, þó að hámarki 7 m.kr. kr. Bætur úr sjúkdómatryggingu barna greiðast aðeins einu sinni fyrir hvert barn.

Ítarlegar upplýsingar um trygginguna og takmarkanir á henni er að finna í skilmálum félagsins á heimasíðunni, en einnig sendum við upplýsingar sé þess óskað.

Hvað er sjúkdómatrygging?

Sjúkdómatryggingin greiðir fyrirfram ákveðna fjárhæð í eingreiðslu til vátryggðs við skilgreindan tjónsatburð, lifi hann í 30 daga frá greiningu sjúkdómsins.

Eingreiðsla kemur sér vel til að geta greitt niður lausaskuldir og fasteignalán. Jafnframt bætir hún tímabundið tekjutap sem verður vegna veikinda vátryggðs. Einstaklingur velur sér heppilega fjárhæð m.t.t. aðstæðna t.d. með því að nota þarfagreiningaforrit OKKAR lífs.

Rétt er að taka fram að þessi tegund trygginga hefur ekki endurkaupsvirði.

Þú ákveður hvaða vátryggingafjárhæð hentar þér. Þú ákveður einnig tímalengd vátryggingasamningsins. Hægt er að kaupa sjúkdómatryggingu frá 18 ára aldri og gildir sjúkdómatrygging félagsins til loka 64 ára aldurs.

Hægt er að greiða fyrir sjúkdómatrygginguna með boðgreiðslum Visa og Euro gegnum greiðsluþjónustu banka og sparisjóða, auk þess sem greiða má með greiðsluseðli eða rafrænni kröfu. Ef vátryggingariðgjald er ekki greitt á gjalddaga, fellur vátryggingin úr gildi eftir 30 eða 90 daga, eftir því hvaða greiðsluform notað er.

Hvenær er vátryggingafjárhæðin greidd út?

Félagið greiðir til vátryggða umsamda vátryggingafjárhæð sem í gildi er á tjónsdegi, greinist hann með bótaskyldan sjúkdóm og lifi hann í 30 daga. Bætur eru greiddar út án frádráttar hugsanlegra skatta og gjalda. Skv. úrskurði yfirskattanefndar í málinu nr. 93/2009, teljast bætur úr sjúkdómastyggingum til skattskylda tekna þess sem bæturnar hlýtur. Íslenska ríkinu hefur nú verið stefnt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til ógildingar á úrskurðinum, enda er það skoðun íslenskra tryggingafélaga og Samtaka Fjármálafyrirtækja, að umrædd skattheimta sé andstæð lögum. Við bendum viðskiptamönnum Okkar á framangreinda skoðun skattyfirvalda. Frekari upplýsingar um þetta má finna hér.

Bótaskyldir sjúkdómar