Líftryggingar

Hvenær eru bætur ekki greiddar úr líftryggingu?

Það eru nokkrar ástæður sem geta valdið því að bótum úr tryggingunni er hafnað.

  • Ef í ljós kemur að mikilvægum upplýsingum um heilsufar hefur verið haldið leyndum fyrir félaginu, getur OKKAR líf hafnað bótum..
  • Séu iðgjöld ekki greidd af vátryggingunni getur verndin fallið niður skv. nánari reglum félagsins
  • Ef andlát er af völdum sjálfsvígs fyrsta ár vátryggingarinnar, eru bætur ekki greiddar.

Ítarlegar upplýsingar um trygginguna og takmarkanir á henni er að finna í skilmálum félagsins á heimasíðunni, en einnig sendum við upplýsingar sé þess óskað.

Hvenær er vátryggingafjárhæðin greidd út?

Við andlát vátryggða greiðir félagið þá vátryggingafjárhæð sem í gildi er á tjónsdegi, til rétthafa bóta. OKKAR líf greiðir bætur eigi síðar en 14 dögum eftir að nauðsynleg gögn hafa borist félaginu. Bætur úr líftryggingu eru skattfrjálsar, hafi iðgjald þeirra verið greitt af sköttuðu fé.

Hve háa vátryggingafjárhæð ætti ég að velja mér?

Besta svarið við þessari spurningu er að fara í þarfagreiningarforrit OKKAR lífs.

Hvað er líftrygging?

Vátryggingin greiðir fyrirfram ákveðna fjárhæð í eingreiðslu við andlát hins tryggða.

Eingreiðsla kemur sér vel til að geta greitt niður lausaskuldir og fasteignalán. Jafnframt bætir hún tímabundið tekjutap sem verður vegna fráfalls fyrirvinnu. Einstaklingur velur sér heppilega fjárhæð m.t.t. aðstæðna t.d. með því að nota þarfagreiningaforrit OKKAR lífs. Rétt er að taka fram að þessi tegund trygginga hefur ekki endurkaupsvirði.

Þú ákveður hvaða vátryggingafjárhæð hentar þér. Þú ákveður einnig tímalengd vátryggingasamningsins. Hægt er að kaupa líftryggingu frá 18 ára aldri og gildir líftrygging félagsins til loka 69 ára aldurs.

Hægt er að greiða fyrir líftrygginguna með boðgreiðslum Visa og Euro, gegnum greiðsluþjónustu banka og sparisjóða, auk þess sem greiða má með greiðsluseðli eða rafrænni kröfu. Ef vátryggingaiðgjald er ekki greitt á gjalddaga, fellur vátryggingin úr gildi eftir 30 eða 90 daga, eftir því hvaða greiðsluform notað er.