Iðgjöld
Hvað gerist ef ég greiði ekki?
Ef vátryggingaiðgjald er ekki greitt á gjalddaga, fellur hún úr gildi 90 dögum síðar. Iðgjöld má greiða inná reikning 301-26-1875, kt. 620166-0229.
Hvernig get ég greitt iðgjöldin?
Megin greiðslumáti eru mánaðarlegar boðgreiðslur Visa eða Euro og greiðsluþjónusta gegnum banka og sparisjóði, en einnig er hægt að greiða iðgjaldið með greiðsluseðli árið fyrirfram.
Hvað kosta tryggingarnar?
Iðgjald ræðst af aldri, kyni, heilsu, vátryggingafjárhæð og tímalengd samningsins.
Eru iðgjöldin óbreytt milli ára eða hækka þau?
Það fer eftir því hvaða tegund tryggingar þú velur.
Aldurstengt iðgjald, hefur það í för með sér að vátryggingafjárhæðin helst óbreytt en iðgjaldið hækkar frá ári til árs í samræmi við aldur vátryggða.
Fast iðgjald/lækkandi vátryggingafjárhæð er annar valkosturinn. Það hefur í för með sér að iðgjaldið helst óbreytt, en lækkun á vátryggingafjárhæð tengist lífslíkum og því lækkar fjárhæðin með hækkandi aldri. Fjölskylduvernd OKKAR lífs er t.d. þannig trygging.
