Bætur
Eru börnin mín vátryggð í sjúkdómatryggingunni minni?
Börn vátryggða eru sjálfkrafa tryggð í sjúkdómatryggingunni. Ef barn vátryggða, 3 mánaða til 18 ára, verður á vátryggingatímanum fyrir bótaskyldum atburði skv. skilmálum félagsins, greiðir félagið 50% vátryggingarfjárhæðar sjúkdómatryggingarinnar, þó að hámarki 7 m.kr. Bætur úr sjúkdómatryggingu barna greiðast aðeins einu sinni fyrir hvert barn.
Greinist barn með bótaskyldan sjúkdóm og lifir í 28 daga eftir greiningu sjúkdóms, greiðast bætur í formi eingreiðslu. Bætur vegna barna hafa ekki áhrif á bótarétt vátryggingataka sjálfs.
Fæ ég einhverjar greiðslur til baka þegar tryggingunni lýkur?
Þær tryggingar sem hér um ræðir hafa ekki endurkaupsvirði, þar sem ekki er um að ræða söfnunartryggingar. Félagið selur söfnunartryggingar en um þær gilda aðrar reglur.
Hvað gerist ef ég verð öryrki?
Ef í gildi er örorkutrygging vegna slyss eða sjúkdóms greiðast tvenns konar bætur.
- Tímabundin örorka er það ástand kallað meðan varanleg niðurstaða er ekki fengin vegna tjónsatburðarins. Bótalaus tími er 6 mánuðir en síðan eru bætur greiddar mánaðarlega í allt að 30 mánuði, eða þar til ástand er orðið stöðugt.
- Valdi slys eða sjúkdómur vátryggðum varanlegri skerðingu starfsorku og fyrir liggur mat þess efnis greiðir félagið örorkubætur í formi skattfrjálsrar eingreiðslu sem tekur mið af tímalengd samningsins og þeirri vátryggingarfjárhæð sem valin hefur verið.
Hvað gerist ef ég greinist með hættulegan sjúkdóm?
Ef í gildi er sjúkdómatrygging, vátryggði fær bótaskyldan sjúkdóm og lifir í 28 daga eftir greiningu sjúkdómsins, eru greiddar bætur í formi eingreiðslu til vátryggða og lýkur þá tryggingunni.
Eru bætur úr tryggingunum skattskyldar?
Samkvæmt gildandi lögum greiðast ekki skattar af eingreiðslu tryggingabóta, hvorki tekjuskattur, fjármagnstekjuskattur né erfðafjárskattur.
Hvað gerist við andlát vátryggða?
Ef í gildi er líftrygging og vátryggður andast áður en tryggingunni lýkur eru greiddar út bætur í formi eingreiðslu til rétthafa bóta úr tryggingunni, en rétthafar eru skilgreindir í vátryggingaumsókn. Bætur greiðast eigi síðar en 14 dögum eftir að félagið hefur fengið nauðsynleg gögn.
